top of page

Fab Lab Bootcamp 550

  • 40 minutes ago
  • 1 min read

Vikuna 26.- 29. maí hittust starfsmenn Fab Lab smiðja á Íslandi í vinnusmiðju á Sauðárkróki.

Er þetta árlegur viðburður og mikilvægur þáttur í endurmenntun, tengslaneti og almennu samstarfi smiðjana. Einnig fengum við góða gesti frá Finnlandi, þær Tinu og Tuuliu sem voru á vegum Erasmus+ í vettvangsferð, sem og fulltrúa frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu þau Lóu Auðunsdóttur og Óla Halldórsson. Þökkum við þeim kærlega fyrir áhugavert og gagnlegt spjall með bjartsýni að leiðarljósi.

Við fórum í heimsókn til Ísponica á Hofsós og þar fengum við að sjá og kynnast því frábæra starfi sem þar fer fram sem og samstarfi við Gró kaffihús. Haldin voru erindi, vinnusmiðjur og unnið að ýmsum verkefnum í smiðjuni. Viljum við sérstaklega þakka Birni Sighvatz og Jóni Pálmasyni fyrir þeirra framlag. Okkur til skemmtunar var svo farið í sund í Hofsós, Skotsvæði Ósmanns heimsótt og fegnið að spreyta sig sem og haldin var Árshátíð starfsmanna á fimmtudagskvöldinu.

Fyrir þá sem vilja kynnar sér þetta frekar er bent á að skoða heimasíðuna okkar Fab Lab Ísland.


Hér má sjá nokkrar myndir frá vikunni, fleiri myndir munu koma inn á síðuna okkar.

 
 
 

Comments


bottom of page