Skiptinemar frá Þýskaland
- Nov 7, 2025
- 1 min read
Í október 2025 komu tveir skiptinemar frá Þýskalandi, þau Bjarne og Jana. Þau eru 17 og 18 ára og var þetta partur af náminu þeirra og fengu því þennan tíma metinn inn á námsferlana sína. Þau voru hjá okkur allan október og var mikið líf og fjör. Þau unnu að ýmsum verkefnum í smiðjunni sem og fóru og skoðuðu sig um, kynntust menningu og náttúru. Voru þau dugleg að skoða bæinn okkar og nærumhverfi, hér eru nokkrar myndir frá þeim.


Partur af upplifuninni var að kynnast starfsemi smiðjunar sem og skólanum FNV. Þau fengu meðal annars að prufa eldsmíði hjá Birni Sighvatz kennara FNV.
Fóru í heimsókn bæði í Textilmiðstöðina á Blönduósi sem og Fab Lab Akureyri, þökkum við þeim fyrir frábærar móttökur.


Nokkur dæmi um verkefni á þessum tíma var að uppfæra 3d prentara, læra að teikna í 3D og prenta út. Þau æfðu sig í Tinkercad, Blender, Freecad og Heroforge.



Einnig var farið í að læra að gera áferð á 3D prent í prusa slicer.
Hanna verkefni fyrir laser, vínylskera og borðspil.
Var til þess notað Inkscape og slicer for fusion.





Vinna í Microbit bíl og læra um forritun og samsetningu búnaðar.
Þetta var mjög lærdómsríkt og höfðu gaman af.

Var þetta krefjandi á köflum sem er kannski ekki skrítið þegar 3 manneskjur sem þekkjast ekkert hittast og deila rými og tíma í langann tíma. En á sama tíma var þetta ákaflea skemmtilegt, fræðandi og mjög vel heppnað að allra mati.
Og verður eflaust til þess að opna dyr fyrir frekari verkefni af þessu tagi.
Takk fyrir komuna krakkar og vegni ykkur vel í framtíðinni.



Comments